Kór Grafarvogskirkju
Kór Grafarvogskirkju hefur starfað frá því að sóknin var stofnuð árið 1989. Kórinn syngur við helgihald í kirkjunni og heldur reglulega tónleika þar sem hann flytur kirkjulega tónlist. Í kórnum syngja að jafnaði um þrjátíu manns. Organisti kirkjunnar stjórnar kórnum.

Um kórinn í örstuttu máli

Aðalverkefni Kórs Grafarvogskirkju er að syngja við athafnir í kirkjunni. Kórinn syngur einnig þegar messað er á Hjúkrunarheimilinu Eir.

Kórinn æfir alltaf á miðvikudagskvöldum, aukaæfingar eru þegar eitthvað þarf að æfa betur eða þegar mikið stendur til. Yfirleitt syngja um 8 söngvarar í hefðbundinni sunnudagsmessu þannig að ekki þurfa allir að koma á hverjum sunnudegi. Oft er þó meira haft við og allur kórinn syngur.

Kórinn heldur yfirleitt tvenna tónleika á ári. Kórinn hefur gert víðreist, heimsótt aðra söfnuðu bæði innanlands og utan og farið í tónleikaferðir til útlanda. Farið var til Tékklands árið 1996, Ítalíu 1999, Englands 2003, Finnlands vorið 2006, Þýskalands 2016, Svíþjóðar haustið 2018 og Þýskalands sumarið 2023.

Í kórnum eru að jafnaði 20-30 meðlimir. Félagsstarf er blómlegt og mikil samstaða meðal kórfólksins. Alltaf má bæta við góðu söngfólki og geta áhugasamir haft samband við organista kirkjunnar.