Prestar kirkjunnar annast fermingarfræðsluna og skiptast hóparnir með eftirfarandi hætti niður á prestana, veturinn 2024 – 2025
- Sr. Aldís Rut Gísladóttir verður með fræðslu á þriðjudögum í Kirkjuseli
- Sr. Sigurður Grétar Helgason verður með fræðslu á þriðjudögum í Kirkjuseli
- Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir verður með fræðslu á miðvikudögum í Grafarvogskirkju
Fermingarfræðslan er einn umfangsmesti þátturinn í starfi safnaðarins. Því má öllum vera ljóst að fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra setja sterkan svip á vetrardagskrá kirkjunnar. Prestar kirkjunnar hvetja foreldra að leiða fjölskyldur sínar til aukinnar þátttöku í safnaðarstarfi kirkjunnar á þessum sérstaka tíma í lífi fermingarbarnsins.
Fermingarfræðsla hefst samkvæmt stundaskrá 10. og 11. september.
Facebook hópurinn okkar heitir fermingar vorið 2025 í Grafarvogskirkju. Við hvetjum bæði forráðafólk og fermingarbörn til að skrá sig í þennan hóp, því þar koma inn upplýsingar um ýmislegt sem varðar fermingarstarfið.
Fermingarfræðsla 2024 – 2025
Grafarvogskirkja
- Miðvikudagar kl. 15 – Hópur V (Foldaskóli)
- Miðvikudagar kl. 16 – Hópur VI (Foldaskóli)
Kirkjusel
- Þriðjudagar kl. 16 – Hópur I (Rimaskóli)
- Þriðjudagar kl. 15 – Hópur II (Víkurskóli)
- Þriðjudagar kl. 17 – Hópur III (Rimaskóli)
- Þriðjudagar kl. 16 – Hópur IV (Víkurskóli)
Samverur vetrarins
Fermingarfræðsla hjá nemendum í Víkurskóla og Rimaskóla verður í Kirkjuselinu í Borgum í Spöng samkvæmt stundaskrá
Fermingarfræðsla hjá Foldaskóla verður í kirkjunni samkvæmt stundaskrá
Þemadagarnir eftir áramót verða laugardaginn 11. janúar, laugardaginn 8. febrúar og laugardaginn 1. mars. kl. 9:00 – 12:00.
Með fyrirvara um breytingar.
Vetrarfrí
Vetrarfrí frá fermingarfræðslu verður 22. og 23. október.
Fermingarferð í Vatnaskóg
Dagana 10. – 11. október er stefnt að sólarhringsferð í Vatnaskóg með hópinn. Það er ekki skyldumæting í þessa ferð en við hvetjum eindregið til að börnin komin með.
Foreldrar þurfa að sækja um leyfi frá skóla vegna ferðarinnar á föstudeginum.
Guðsþjónustur
Fermingarnámskeiðið samanstendur af vikulegum samverum í kirkjunni fram að áramótum, þremur þemadögum eftir áramót, ferð í Vatnaskóg og guðsþjónustum. Til þess að fermast þarf að mæta í samverurnar og í 14 guðsþjónustur yfir veturinn, sjö fyrir áramót og sjö eftir áramót. Guðsþjónustur eru alla sunnudaga í kirkjunni kl. 11:00 og í Kirkjuselinu í Borgum í Spönginni kl. 13:00, svokallaðar Vörðumessur. Fermingarbörn fá ekki stimpil fyrir að mæta í sunnudagaskóla þó þau séu velkomin þangað. Nokkrum sinnum yfir veturinn býðst fermingarbörnunum að taka sérstakan þátt í guðsþjónustunni (vera messuþjónar) og fá auka stimpla. Þau sem hafa áhuga á því hafa samband við þann prest sem hefur umsjón með hópnum þeirra. Með þessu móti er hægt að vera fljótari að safna þessum 14 stimplum. Hægt er að vera messuþjónn í messu sem umsjónarprestur hópsins er með.
Æskulýðsfundir í kirkjunni á þriðjudögum kl. 20:00
Æskulýðsfundir eru í boði fyrir fermingarbörn alla þriðjudaga kl. 20:00. Fjölbreytt dagskrá verður í boði. Þeim sem mæta reglulega gefst kostur á að taka þátt í Landsmóti æskulýðsfélaga í október og í Febrúarmóti í Vatnaskógi.
Veikindi og forföll
Ef fermingarbarn kemst ekki í tíma vegna veikinda er mikilvægt að hafa samband við prestinn sem hefur umsjón með hópnum. Það er hægt að láta viðkomandi prest vita með tölvupósti. Ef fermingarbarn kemst ekki í tíma af öðrum ástæðum er mikilvægt að láta vita og mæta í einhvern annan tíma í vikunni í staðinn. Í boði eru nokkrir mismunandi tímar í hverri viku þannig að yfirleitt er hægt að finna einhvern tíma sem passar.
Fermingar
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra skrá sig sjálf á fermingardaga. Hver skóli fær úthlutað ákveðnum fermingardögum en einnig er velkomið að velja daga sem merktir eru öðrum skólum.