10 til 12 ára starf er fyrir börn í 5-7 bekk. Í TTT í Grafarvogskirkju verður skemmtileg og fjölbreytt dagskrá sem hentar öllum! Það er ókeypis að taka þátt og vonumst við til þess að sjá ykkur sem flest!
Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni. Boðið verður uppá námskeið á vorönn á neðri hæð Grafarvogskirkju á mánudögum frá 18:15-19:15.
Umsjón með starfinu hefur Bjarki Geirdal Guðfinnsson, fyrir frekari upplýsingar má hafa samband á netfangið bjarkigg@gmail.com.
Grafarvogskirkja
Námskeiðin verða eftirfarandi mánudaga á neðri hæð Grafarvogskirkju:
- 20. janúar
- 27. janúar
- 3. febrúar
- 10. febrúar
- 17. febrúar
- 14. febrúar
Því lýkur á æskulýðsmessu í Grafarvogskirkju sunnudaginn 2. mars
Dagskráin
Dagskráin er fjölbreytt, létt hressing verður í boði, sagðar verða Biblíusögur, farið með bænir, sálmar sungnir, föndrað og farið í leiki.