Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 4. mars kl. 13:00-15:30
Sr. Þorvaldur Víðisson verður gestur dagsins og mun flytja erindi.
Eins verður spilað og spjallað.
Kaffi og meðlæti.
Kyrrðarstund hefst kl. 12:00.
Hugljúf tónlist, fyrirbænir og altarisganga.
Léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi að kyrrðarstund lokinni.
Verið öll hjartanlega velkomin!