Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 4. febrúar kl. 13:00-15:30

Helga Margrét Marzelíusardóttir kórstjóri mun stjórna fjöldasöng.

Sr. Aldís Rút Gísladóttir verður með stólaleikfimi en hún er lærður jógakennari.

Eins verður spilað og spjallað.

Kaffi og meðlæti.

Kyrrðarstund hefst kl. 12:00.

Hugljúf tónlist, fyrirbænir og altarisganga.

Léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi að kyrrðarstund lokinni.

Verið öll hjartanlega velkomin!