Organisti óskast!
Við Grafarvogssókn er laus 65% staða organista.
Starfsskyldur organista eru:
- Orgelleikur og kórstjórn við helgihald í Grafarvogskirkju, Kirkjuselinu í Spöng og á hjúkrunarheimilinu Eir.
- Undirleikur á kóræfingum barnakórs Grafarvogs í Grafarvogskirkju, í helgistundum og við samsöng eldri borgara.
- Auk annara tilfallandi verkefna sem rúmast innan starfsskyldna og starfshlutfalls.
Hæfni:
- Umsækjandi þarf að minnsta kosti hafið lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegu prófi í kirkjutónlist.
- Hafa reynslu af tónlistarflutningi við helgihald og kórstjórn.
- Umsækjandi þarf að hafa gaman af fjölbreyttu helgihaldi, vera hugmyndaríkur og hafa áhuga á að taka þátt í að byggja upp tónlistarstarf í söfnuðinum.
- Umsækjandi þarf að hafa færni í samskiptum, getu til að vinna í hóp og hæfni til að starfa sjálfstætt.
Staða organista heyrir undir organista/tónlistarstjóra Grafarvogssóknar. Organisti mun sinna helgihaldi að jafnaði aðra hvora helgi. Gert er ráð fyrir því að organisti/tónlistarstjóri og organisti, leysi hvorn annan af í fríum.
Í Grafarvogssókn er helgihald allan ársins hring í Grafarvogskirkju, yfir vetrartímann í Kirkjuseli í Spöng og reglulega á hjúkrunarheimilinu Eir. Þrír kórar eru við kirkjuna, kirkjukór, Vox Populi og barnakór Grafarvogs í Grafarvogskirkju sem rekinn er í samstarfi við Tónskólann í Reykjavík. Auk organista/tónlistarstjóra og organista starfa þrír prestar, einn djákni, æskulýðsfulltrúi, kirkjuverðir og ritari í sókninni.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2025. Umsóknarfrestur er til 12. desember 2024. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi FÍO og Þjóðkirkjunnar.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn og ferilskrá á netfangið formadur@grafarvogskirkja.is
Nánari upplýsingar veitir Anna Guðrún Sigurvinsdóttir formaður sóknarnefndar í síma 858 1002, formadur@grafarvogskirkja.is