Sunnudaginn 22. september kl. 11:00 verður fermingarbarnamessa og Pálínuboð.
Við bjóðum fermingarbörn vetrarins velkomin!
Fermingarbörn í Víkur- og Rimaskóla ásamt forráðamönnum þeirra er sérstaklega boðið til þessarar messu og kynningarfundar í kjölfarið.
Við leggjum saman eitthvað á veisluborð sem njótum eftir messu.
Sr. Sigurður Grétar Helgason og sr. Aldís Rut Gísladóttir þjóna.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.
Umsjón hefur Hilda Sigurðardóttir guðfræðinemi.
Vörðumessa verður kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.
Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar.
Vox Populi leiðir söng.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Við deilum sögum og hlöðum vörður.
Ljúf tónlist.