Sameiginleg sumarmessa samstarfssvæðis Grafarvogs, Grafarholts og Árbæjar verður að þessu sinni á vegum ÁRbæjarkirkju við vatnspóstinn fyrir neðan kirkjuna. Prestar kirknanna þjóna, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar. Elísabet Einarsdóttir spilar á harmonikku, félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða söng. Á eftir er boðið upp á léttar veitingar.

Safnast verður saman í bíla í Grafarvogskirkju kl. 10 fyrir þau sem vilja.