Sunnudaginn 18. september kl. 11:00 verður hátíðarguðsþjónusta.
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir vígir nýtt orgel kirkjunnar.
Prestar safnaðarins, djákni, organistar og formaður sóknarnefndar þjóna í athöfninni.
Allir kórar kirkjunar syngja.
Organistar eru Hákon Leifsson og Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Flutt verða tvö frumsamin orgelverk við vígsluna.
Boðið verður upp á veitingar að guðsþjónustu lokinni.
Orgelvígslutónleikar verða kl. 19:30.
Hinn víðkunni orgelleikari Hans-Ola Ericsson leikur á orgelið tónlist eftir Bach, Sibelius, Haydn, Brahms o. fl.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
Verið öll hjartanlega velkomin!