Sumarið er tími kaffihúsaguðsþjónustunnar í Grafarvogskirkju. Andrúmsloftið er afslappað og fólk getur setið við borð með kaffiveitingum á meðan guðsþjónustan fer fram. Sunnudaginn 6. ágúst verður kaffihúsaguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11.00. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar, Hákon Leifsson leikur á píanó og Egill Gunnarsson er forsöngvari. Vertu velkominn og láttu fara vel um þig!