Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 11. febrúar kl. 13:00-15:30
Elín Elísabet Jóhannsdóttir fræðslustjóri Biskupsstofu kemur í heimsókn og flytur erindi.
Eins verður spilað og spjallað.
Kaffi og meðlæti.
Kyrrðarstund hefst kl. 12:00.
Hugljúf tónlist, fyrirbænir og altarisganga.
Léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi að kyrrðarstund lokinni.
Verið öll hjartanlega velkomin!