Opið hús fyrir eldri borgara verður í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 21. janúar!

Opna húsið er kl. 13:00-15:30

Gestur dagsins er Rakel Garðarsdóttir. Hún mun segja frá þáttunum um frú Vigdísi Finnbogadóttur.

Að opna húsinu loknu er kaffi og meðlæti.

Kyrrðarstund er kl. 12:00.

Kyrrlát stund með ljúfri tónlist, fyrirbænum og altarisgöngu.

Að kyrrðarstund lokinni er í boði léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi.

Verið öll velkomin!