Sunnudaginn 20. október verður fjölskylduflæðimessa í Grafarvogskirkju kl. 11:00.
Sr. Aldís Rut Gísladóttir og Hilda María Sigurðardóttir guðfræðinemi þjóna.
Barna- og unglingakór Grafarvogs syngur undir stjórn Auðar Guðjohnsen.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
Margar stöðvar verða í boði s.s. föndur-, leikja-, bæna- og sögustöðvar.
Léttar veitingar verða að messu lokinni.
Vörðumessa verður í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00.
Kristín Kristjánsdóttir djákni þjónar.
Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Stefán Birkisson.
Hugljúf tónlist og kertaljós.
Við segjum sögur og hlöðum vörður úr sögunum okkar.