Sunnudaginn 30. júní kl. 11 kveður sr. Guðrún Karls Helgudóttir, verðandi biskup, Grafarvogssöfnuð eftir 16 ára þjónustu. Hún þjónar í kaffihúsamessu og er sóknarbörnum og öllu kirkjufólki boðið að koma og kveðja hana og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi, en hún tekur við embætti biskups Íslands daginn eftir, 1. júlí.

Félagar úr Kór Grafarvogskirkju leiða söng, organisti er Hákon Leifsson, kaffiveitingar að messu lokinni.