Sunnudaginn 18. febrúar verður guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Orgnisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.
Umsjón hafa Kristín Kristjánsdóttir djákni og Hulda Berglind Tamara.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
Vörðumessa er kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.
Við segjum sögur og hlöðum vörður.
Kristín Kristjánsdóttir djákni þjónar.
Vox Populi leiðir söng.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.