Sunnudaginn 18. desember kl. 11:00 verður jólaball í Grafarvogskirkju.
Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og sr. Guðrún Karls Helgudóttir
Dansað verður í kringum jólatréð og jólasveinar koma í heimsókn.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
Selmessa – Óskasálmar jólanna verður kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.
Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar.
Vox Populi leiðir söng. Við syngjum uppáhalds jólalögin þín.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Verið öll hjartanlega velkomin!