Haustferð eldri borgara í Grafarvogskirkju verður farin þriðjudaginn 27. september.
Lagt verður af stað frá Grafarvogskirkju kl. 10:00 og Borgum kl. 10:15.
Farið verður á Þingvelli þar sem haustlitirnir skarta sínu fegursta.
Við skoðum Þingvallakirkju þar sem við fáum leiðsögn og sögu kirkjunnar frá Torfa Stefáni Jónssyni.
Þaðan leggjum við leið okkar á Flúðir.
Hádegisverður og skoðunarferð á sveppabúinu Farmets Bistró á Flúðum.
Ferðin kostar kr. 6,500.- á mann.
Innifalið er rúta, hádegismatur, kaffi og skoðunarferð.
Áætluð heimkoma er kl. 16:00.
Skráning í síma 587 9070 eða senda netfangið kristin@grafarvogskirkja.is
Verið öll velkomin!