Á hvítasunnudag verður kaffihúsamessa í Grafarvogskirkju.
Messan hefst kl. 11:00.
Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Kaffihúsamessur eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11:00 út ágústmánuð.
Messuformið er einfalt og notalegt andrúmsloft.
Verið hjartanlega velkomin!