Sunnudaginn 29. maí verður kaffihúsamessa. Messan hefst kl. 11:00.
Sr. Magnús Erlingsson þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Kaffihúsamessur eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11:00 út ágústmánuð.
Messuformið er einfalt notalegt andrúmsloft.
Aðalfundur Grafarvogssafnaðar verður haldinn í kirkjunni sunnudaginn 29. maí næstkomandi.
Fundur verður haldinn að lokinni kaffihúsamessu sem hefst kl. 11 og verður hann haldinn á neðri hæð kirkjunnar.
Dagskrá fundarins eru venjubundin aðalfundarstörf.
Velkomin!