Þriðjudaginn 2. nóvember verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju.
Opna húsið er kl. 13:00-15:00.
Margt er til gamans gert; sungið, spilað og spjallað.
Að opna húsinu loknu er boðið uppá kaffi og meðlæti.
Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.
Kyrrðarstund hefst kl. 12:00.
Kyrrlát stund með fyrirbænum, altarisgöngu og tónlist.
Boðið er upp á léttar veitingar gegn vægu gjaldi að lokinni kyrrðarstundinni.
Allir hjartanlega velkomnir!