Sunnudaginn 10. október verður sunnudagaskóli á neðri hæð Grafarvogskirkju.
Sunnudagaskólinn byrjar kl. 11:00.
Í sunnudagskólanum er margt skemmtilegt brallað.
Umsjón hafa sr. Magnús Erlingsson, Ásta Jóhanna Harðardóttir og Valbjörn Snær Lilliendahl.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
Allir hjartanlega velkomnir!