Opið hús er í kirkjunni alla þriðjudaga kl. 13:00-15:30.
Á morgun 21. september verður farið á sýningu á kirkjulistaverkum Sigrúnar Jónsdóttur í Seltjarnarneskirkju.
Sigrún gerði alla hökla og stólur í Grafarvogskirkju auk altarisklæða.
Rúta fer frá kirkjunni kl. 13:00.
Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir!