Þriðjudaginn 14. september hefst á ný eftir sumarhlé félagsstarf eldri borgara.
Opið hús verður í kirkjunni kl. 13:00-15:30.
Í upphafi er söngstund inni í kirkjunni. Boðið er uppá handavinnu, spil og spjall fyrir þau sem það vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum.
Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir
Kyrrðarstund hefst kl. 12:00 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.