Barninu ykkar, er boðið með fjölskyldu sinni til þemaguðsþjónustu í hátíðarsal Borgarholtsskóla sunnudaginn 20. janúar, kl. 17:00.
Barnastarfi kirkjunnar er ætlað að vera útrétt hönd til að styðja foreldra í trúaruppeldi. Hluti af því uppeldi er varðveisla líkama barnsins og lífs, enda segir í ritningunni að líkami okkar sé musteri heilags anda. Við eigum aðeins þetta eina líf og viljum kenna börnum okkar að fara vel með það. Einmitt þess vegna er þema guðsþjónustunnar: ,,Einn líkami, eitt líf”.
Af því tilefni hefur Grafarvogssöfnuður fengið Brúðuleikhús Helgu Steffensen til að heimsækja okkur og setja upp forvarnasýninguna Númi á ferð og flugi sem byggð er á bókinni Númi og höfuðin sjö eftir Sjón. Við vonum að þið sjáið ykkur fært að koma með börnum ykkar og njóta uppbyggjandi síðdegis í hátíðarsal Borgarholtsskóla.
Þá hefur stelpuklúbbur Grafarvogskirkju staðið í ströngu við brjóstsykursgerð og munu þær selja molana á staðnum. Pokinn fæst fyrir kr. 300 og mun allur ágóði renna í sjóð til styrktar ,,Einstökum börnum”. Verkefnið er liður í kærleiksþjónustu kirkjunnar.
Kær kveðja,
Lena Rós Matthíasdóttir, prestur og
Þóra Björg Sigurðardóttir, æskulýðsfulltrúi.