Eins og undanfarin ár hafa ráðherrar og þingmenn lesið úr Passíusálmunum í Grafarvogskirkju kl. 18 alla virka daga föstunnar. Það er lesinn einn passíusálmur hvern dag. Á miðvikudaginn 17. febrúar (öskudag) verður fyrsti lesturinn, en þá hefst föstutímabilið í kirkjunni sem er jafnframt undirbúningstími páskanna. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra mun lesa fyrsta sálminn. Alls eru þetta 31 skipti og verður síðasti lesturinn 31. mars nk., daginn fyrir skírdag. En þá mun Sigmundur Ernir Rúnarsson lesa síðast sálminn.
Þessi lestur úr Passíusálmunum er nefndur „Á leiðinni heim“. Hugsunin að baki er sú að fólk geti komið við í kirkjunni á leiðinni heim til sín að loknum vinnudegi og hlustað á einn passíusálm og notið andagiftar séra Hallgríms Péturssonar. Hver lestur er hluti af stuttri helgistund sem stendur yfir í 15 mínútur og hefst hver stund kl. 18:00 og líkur kl. 18:15.
Mánudagur, 22. mars Álfheiður Ingadóttir
Þriðjudagur, 23. mars Ólína Þorvarðardóttir
Miðvikudagur, 24. mars Svandís Svavarsdóttir
Fimmtudagur, 25. mars Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Föstudagur, 26. mars Tryggvi Herbertsson
Mánudagur, 29. mars Þráinn Bertelsson
Þriðjudagur, 30. mars Skúli Helgason
Miðvikudagur, 31. mars Sigmundur Ernir Rúnarsson