Þar sem þess er nú minnst að ár er frá hruninu, munu prestar minnast þess í kirkjum landsins við messu sunnudagsins 4. október. Verður þar sérstaklega beðið fyrir fjölskyldum og heimilum og safnað fyrir innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar. Yfirskrift dagsins verður: Biðjum og styðjum! Þau sem telja sig aflögufær eru hvött til að mæta til guðsþjónustu þann daginn, og rétta fram hjálparhönd til þeirra mörgu heimila landsins sem á aðstoð þurfa að halda. Tökum höndum saman um jöfnuð meðal barna okkar!
Í Guðs friði
Prestar Grafarvogssafnaðar